Vinbudin.is hefur verið tilnefndur einn af fimm bestu opinberu vefum landsins.
Íslensku vefverðlaunin eru uppskeruhátíð vefiðnaðarins, en átta manna dómnefnd skipuð sérfræðingum í vefmálum velur bestu vefina hverju sinni. Hátt á annað hundrað verkefni voru send inn að þessu sinni, en verðlaun verða veitt í 15 flokkum.
Verðlaunaafhending og uppskeruhátíð Íslensku vefverðlaunanna verður næstkomandi föstudag, 29. janúar 2016.