Óskað eftir húsnæði á leigu fyrir Vínbúð í Reykjanesbæ, á bilinu 350-450 fermetra á jarðhæð.
Húsnæði þarf að fullnægja eftirfarandi kröfum:
- Vera á skilgreindu miðbæjarsvæði í aðalskipulagi Reykjanesbæjar.
- Vera á jarðhæð og á bilinu 350-450 fermetrar.
- Húsnæðið verður að fullnægja öllum kröfum sem opinberar eftirlitsstofnanir og umsagnaraðilar gera til slíks og samþykkt af þeim.
- Góð aðkoma fyrir viðskiptavini og næg bílastæði fyrir þá.
- Góð aðkoma fyrir flutningabíla með vörur og vörulyftara.
- Sérstaklega er lögð áhersla á meðal annars gott aðgengi hreyfihamlaða, birtulýsingu (500-600 lux) og hljóðdempun í verslun ásamt góðri aðstöðu starfsfólks.
Áhugasamir skulu senda öll gögn um það húsnæði sem þeir hyggjast bjóða í lokuðu umslagi til skrifstofu Ríkiskaupa, Borgartúni 7, 105 Reykjavík fyrir 18 október 2007.
Merkt : 14334 - Leiga á húsnæði fyrir Á.T.V.R. í Reykjanesbæ
Gögn þurfa meðal annars að innihalda eftirfarandi:
- Staðsetning
- Teikningar af húsnæði
- Afhendingartími
- Ástand húsnæðis við afhendingu
- Leiguverð á fermetra með virðisaukaskatti. Í leiguverðinu skal vera tilgreindur allur kostnaður sem til fellur.
- Leigutími