Vínbúðirnar hafa undanfarin ár rekið vínskóla hugsaðan til að auka vöruþekkingu starfsmanna í þeim tilgangi að geta frætt og þjónað viðskiptavinum enn betur. Nú síðastliðið vor hlotnaðist Vínskólanum mikill heiður, þegar einn virtasti vínskóli heims, WSET í London, viðurkenndi vínskóla vínbúðanna sem einn af þeim vínskólum í veröldinni sem væri hæfur til þess að kenna svokallað Advanced námskeið þeirra. Þetta er staðfesting fyrir vínskólann á að kennsla og öll aðstaða til hennar er á heimsmælikvarða og að vínbúðirnar hafa innan sinna vébanda vínsérfræðinga sem hafa þekkingu til að annast alþjóðlega viðurkennd námskeið.