Haldinn var fundur með birgjum áfengis nú í vikunni, en slíkir fundir eru haldnir tvisvar á ári með það að markmiði að efla tengsl við birgja í samræmi við heildarstefnu ÁTVR.
Starfsfólk ÁTVR vinnur með birgjum að framsetningu í vínbúðum, kynningum og fræðslu til viðskiptavina og starfsmanna. Í sameiningu er lagður metnaður í að vöruúrval í vínbúðum sé framsækið og fjölbreytt, í samræmi við væntingar viðskiptavina á hverjum tíma.