Átta sérstakir jólabjórar verða seldar í vínbúðum ÁTVR fyrir jólin. Hver með sín sérkenni í bragði, ljósir, dökkir og þar á milli.
Egils Malt Jólabjór
Dökkbrúnn. Bragðmikill, með sætum malt og lakkrískeim.
330 ml, 5,6%
Ísland 189 kr.
Víking Jólabjór
Gullinn. Meðalfylling, mjúkur með malt og
humla keim.
330 ml. 5,2%
Ísland 169 kr.
Royal X-Mas
Ljósbrúnn. Bragðmikill, mjúkur með brenndum karamellukeim.
330 ml, 5,6%
Danmörk 169 kr
Tuborg Julebryg
Dökkgullinn. Bragðmikill, mjúkur með sætum
karamellukeim.
330 ml. 5,6%.
Danmörk 189 kr.
Albani Jule Bryg
Dökkgullinn. Kröftugur, mjúkur með sætum ávaxtakeim.
Létt beiskja.
330 ml. 7%
Danmörk 219 kr.
Egils Jólabjór
Gullinn, Meðalfylling, sætuvottur með léttri beiskju.
330 ml. 4,8%
Ísland 163 kr.
Faxe Christmas
Dökkgullinn. Meðalfylling, frísklegur með karamellukeim.
1.000 ml. 5%
Danmörk 379 kr
Víking Jólabjór
Gullinn. Meðalfylling, mjúkur með malt og humla keim.
500 ml. 5,2%
Ísland 210 kr