Í vikunni voru settir upp nýir vegvísar í vínbúðunum í Smáralind og Hafnarfirði af sömu gerð og settir voru upp í Kringlunni og Smáralind fyrr í sumar. Vegvísarnir mælast vel fyrir hjá viðskiptavinum og starfsfólki vínbúðanna þar sem þægilegra er að rata að einstökum tegundunum vína í búðunum og þar að auki falla þeir vel að innréttingum búðanna.