Vínblaðið var að koma út og verður dreift í vínbúðirnar í dag.Að þessu sinni er ný heildarstefna ÁTVR kynnt, sagt frá ítölsku kynningunni í vínbúðunum sem nú stendur yfir og að því tilefni fjallar Þorri Hringsson um víngerð á Ítalíu í grein sinni Yndislega Ítalía og Primitivo þrúgan kemur við sögu. Þá er hægt að fræðast um hvort verð sé góður mælikvarði á vín.
Verðlaunakokteilar Barþjónasamtakanna eru í Vínblaðinu auk annarra áhugaverðra mola í sambandi við vín og víngerð.