Samkvæmt starfsreglum ÁTVR telst íbúafjöldi Mýrdalshrepps og þéttbýliskjarna Víkur nægur til að opnuð verði vínbúð í Vík. Á fund stjórnar ÁTVR 14. nóvember s.l. var samþykkt að opna þar verslun á árinu 2003. Tímasetning opnunar Vínbúðar er að öðru leyti óákveðin. Að venju mun ÁTVR auglýsa eftir samstarfsaðila um reksturinn.