Viðtökur viðskiptavina vegna nýrrar vínbúðar í Skeifunni eru vonum framar. Að sögn Regínu Arngrímsdóttir verslunarstjóra eru viðskiptavinir afar ánægðir með nýju Vínbúðina og þá sérstaklega aðgengið og staðsetninguna.
Jafnframt er búðin rúmgóð og bjórkælir er í Vínbúðinni sem gleður margan viðskiptavininn. Starfsfólkið er jafnframt ánægt enda um að ræða bjarta og skemmtilega vínbúð.