Vínbúðirnar bjóða upp á nokkrar tegundir af umhverfisvænum pokum enda kjósa stöðugt fleiri viðskiptavinir þá í stað plastpokanna. Samfélagsábyrgð skiptir Vínbúðirnar miklu máli og höfum við stolt tekið þátt í umhverfisábyrgð meðal annars með því að stuðla að því að draga úr notkun á plastpokum og einnota vörum. Nýjasta viðbótin hjá Vínbúðunum í þessari flóru, en fyrstu pokarnir fóru í sölu í lok októbermánaðar, eru maíspokarnir en þeir eru úr 100% niðurbrjótalegum lífrænum efnum og valda ekki mengun í lífríkinu. Pokinn brotnar niður á nokkrum mánuðunum.
Í nýjasta tölublaði Vínblaðsins er grein eftir Dofra Hermannsson, verkefnisstjóra markaðsmála hjá Íslenska gámafélaganum, þar sem hann ræðir um maíspokann, stöðu hans og framtíð.