Miðvikudaginn fyrir páska, þann 1. apríl, verða Vínbúðirnar opnar eins og um föstudag sé að ræða. Á höfuðborgarsvæðinu verður opið til klukkan 19 og til klukkan 20 á Dalvegi, Skútuvogi og Skeifunni. Lokað verður í öllum Vínbúðum á skírdag og föstudaginn langa, en hefðbundinn opnunartími verður laugardaginn 4. apríl.
Lokað er í tóbaksafgreiðslu um páskana (fimmtudag til mánudag). Opnum aftur þriðjudaginn 7. apríl kl. 8:30.
Gleðilega páska!