Ný Vínbúð hefur nú opnað á Kópaskeri. Búðin er staðsett innaf versluninni Skerið, að Bakkagötu 10, en hún er í flokki minnstu Vínbúðanna. ÁTVR rekur nú 49 Vínbúðir um allt land.
Opnunartími Vínbúðarinnar nú í vetur er mánudaga til fimmtudaga frá 17-18 og föstudaga frá 14-18, en hér er hægt að kynna sér opnunartímana nánar.
Við bjóðum viðskiptavini velkomna í glæsilega Vínbúð.