Glænýtt Vínblað er komið út. Meðal efnis í blaðinu er grein eftir Pál vínráðgjafa, Bjór er ekki bara bjór, en áhugi á öðruvísi bjór hefur aukist verulega á undanförnum árum. Þar fer hann yfir helstu eiginleika bjórs og helsta hráefni. Þá er að finna í blaðinu grein eftir Hallgerði Gísladóttur sem birtist fyrst í Vínblaðinu fyrir 10 árum og ber heitið Stiklur um bjórsögunni. Greinin er úr bók Hallgerðar, Íslensk matarhefð sem var gefin út árið 1999. Í blaðinu er farið í helstu flokka bjórs, Júlíus vínráðgjafi gefur uppskrift af bjórelduðum lambaskönkum, Gissur vínráðgjafi segir fréttir úr vínheiminum og Páll vínráðgjafi ræðir um berjalíkjöra og hvað ber að hafa í huga við líkjörsgerðina.
Þá ræðir Páll einnig um vín og bjór með villisveppum og gefur góð ráð því tengt. Birna Borg Sigurgeirsdóttir, verslunarstjóri hjá Vínbúðinni, ræðir hlutverk starfsfólks í Vínbúðunum þegar kemur að samfélagslegri ábyrgð. Þá má finna greinina Veigar með villbráð þar sem Páll vínráðgjafi ræðir um villibráð og hvað gott sé að drekka með henni. Í greininni talar hann m.a. um að íslenska villibráðin sé að margra mati besta kjöt sem hægt er að fá enda hafa rjúpa, gæs og hreindýr lengi skipað heiðurssess á hátíðarborðum landsmanna. Villibráð er magurt kjöt og því segir Páll að varast ætti vín með mikil eða þurrkandi tannín.
Vörulistinn er svo sjálfsögðu á sínum stað. Allt þetta og meira til er að finna í nýjasta hefti Vínblaðsins sem hægt er að nálgast frítt í næstu Vínbúð, en einnig er hægt að nálgast það hér á vefnum. Njótið vel!