Sleppa valmynd og fara beint í meginmál

Flutningur væntanlegur í Hveragerði

24.03.2014

Vínbúðin Hveragerði flyturÍ maí er stefnt á að flytja Vínbúðina í Hveragerði í nýtt og stærra húsnæði í verslunarmiðstöðinni Sunnumörk í Hveragerði.   Við vonum að með flutningi Vínbúðarinnar batni aðstaða fyrir viðskiptavini til muna, en nýja húsnæðið verður töluvert stærra en þar sem núverandi vínbúð er staðsett.  Til fróðleiks má geta þess að á síðasta ári heimsóttu rúmlega 57 þúsund viðskiptavinir Vínbúðina og keyptu um 238 þúsund lítra af áfengi.  496 vörur voru seldar á árinu í vínbúðinni.  Söluhæsta tegundin seldist í um 46.300 einingum en ein eining seldist af söluminnstu tegundinni.