Dagana 17. til 24. desember seldust 715,8 þúsund lítrar af áfengi en á sama tíma í fyrra seldust 680 þúsund lítrar. Er aukningin því 5,3% á milli ára. Munar mestu í sölu á bjór en sala á bjór jókst á milli tímabila um 7,5%. Samdráttur var í sölu á sterku áfengi um 2% en sala í léttum vínum var svipuð á milli ára.

Á tímabili komu 140 þúsund viðskiptavinir í Vínbúðirnar miðað við 132 þúsund í fyrra. Munar því 6,2% á fjölda viðskiptavina milli ára. Sala á jólabjór frá 15. nóvember til 24. desember í ár var 607 þúsund lítrar, en var á sama tímabili í fyrra 559,5 þúsund lítrar. Aukningin er því 8,5% á jólabjórnum.
Mikið annríki var í Vínbúðunum á Þorláksmessu en þá komu 43.456 viðskiptavinir og þann dag voru seldir 230,8 þúsund lítrar af áfengi. Þetta er mesti fjöldi viðskiptavina síðasta opnunardag fyrir aðfangadag ef horft er á tímabilið 2007 – 2013.


30.desember er að jafnaði einn söluhæsti dagur ársins. Að jafnaði koma um 44 þúsund viðskiptavinir í Vínbúðirnar á þeim degi. Dreifingin er ekki jöfn yfir daginn og koma flestir viðskiptavinir milli klukkan 16 og 18. Þegar mest er að gera fara um 125 viðskiptavinir í gegnum afgreiðslukerfi Vínbúðanna á hverri mínútu samfleytt í tvo klukkutíma. Slíkur fjöldi er aðeins yfir afkastagetu afgreiðslukerfis Vínbúðanna og því má búast við röðum í stærstu Vínbúðunum í kringum þessa tíma.
Vínbúðirnar óska landsmönnum farsældar á komandi ári!