SALA Á JÓLABJÓRNUM Hafin
Sala á jólabjórnum er hafin í Vínbúðunum, en alls eru 25 tegundir í boði þetta árið, bæði nýjar og gamlar. Fjórtán íslenskar tegundir í þessum hópi, en Danir koma þar fast á eftir. Einnig eru á listanum tegundir frá Belgíu, Bandaríkjunum og Bretlandi.
Í ár eru sjö nýir jólabjórar seldir, en þeir eru
- Egils Malt jólabjór
- Thule jólabjór frá Vífilfelli
- Ýlir frá Gæðingi
- Stúfur frá Borg Brugghúsi
- Snowball Saison frá To Øl, Danmörku
- Carl‘s Jul frá Carlsberg, Danmörku
- Giljagaur, Borg
Um 600 þúsund lítrar seldust í fyrra og þar af tæplega helmingurinn síðustu tvær vikur nóvembermánaðar.
Hér má sjá lista yfir jólabjórana sem til eru í Vínbúðum núna