Vínbúðin Grundarfirði hefur nú opnað í nýju og glæsilegu húsnæði að Grundargötu 38. Mikið hagræði er í breytingunni fyrir viðskiptavini því nú verður verslunin í sjálfsafgreiðsluformi en fram til þessa hefur verið afgreitt yfir borð.
Kári Gunnarsson hefur verið ráðinn verslunarstjóri Vínbúðarinnar og verður opnunartíminn sá sami út maí, þ.e. 17-18 mánudaga til fimmtudaga og 14 til 18 á föstudögum, en þann 1. júní tekur sumaropnunartíminn við og verður þá opið frá 16-18 mánudaga til fimmtudaga og 13-18 á föstudögum.
Við bjóðum viðskiptavini velkomna á nýja staðinn!