Mikið er að gera í Vinbúðunum fyrir hátíðirnar og eru tveir annasömustu dagarnir Þorláksmessan og 30. desember, en oft hefur þurft að hleypa viðskiptavinum inn í hollum á mestu álagstímunum. Í ár lenda þessir dagar á sunnudegi en samkvæmt lögum er Vínbúðunum óheimilt að hafa opið þá. Gera má ráð fyrir að vegna þessa verði miklar annir í Vínbúðunum á aðfangadag og gamlársdag.
Við hvetjum því viðskiptavini til að vera snemma á ferðinni ef þeir vilja forðast biðraðir og kynna sér vel opnunartímann.