Viðtökur viðskiptavina vegna opnunar vínbúðar í Skeifunni 5 eru framar vonum. Sölutölur fyrstu daganna eftir opnun gefa til kynna að tímabært var að opna vínbúð á þessu svæði.
Að sögn Regínu Arngrímsdóttur verslunarstjóra eru viðskiptavinir afar ánægðir með nýju vínbúðina og þá sérstaklega aðgengið og staðsetninguna. Jafnframt er búðin rúmgóð og bjórkælir er í vínbúðinni sem gleður margan viðskiptavininn.
Vínbúðin er opin mánudaga - föstudaga frá kl. 09:00-20:00 og laugardögum frá 11:00-18:00.