Áætlað er að opna þrjár nýjar vínbúðir á árinu, þar af tvær á höfuðborgarsvæðinu.
Ný vínbúð verður opnuð í Skeifunni í húsnæðinu þar sem Krónan var áður, en áætlað er að opna vínbúðina í júní. Einnig er áætlað að opna nýja 200 tegunda vínbúð á Hellu í lok júní.
Í lok þessa árs er svo áætlað að opna nýja vínbúð í Borgartúni, en vínbúðin verður til húsa í nýju húsi á svokölluðum "Bílanaustreit".