Vikan fyrir verslunarmannahelgi er ein annasamasta vika ársins í Vínbúðunum. Í fyrra komu tæplega 117 þúsund viðskiptavinir í Vínbúðirnar í þeirri viku.
Til samanburðar komu að meðaltali um 98 þús. viðskiptavinir í Vínbúðirnar í viku í júlí sl. Í fyrra seldust 662 þúsund lítrar af áfengi í vikunni fyrir verslunarmannahelgina en meðalsala á viku í júlí er um 449 þúsund lítrar. Salan í vikunni fyrir verslunarmannahelgina er því um 47% meiri en sala í meðalviku í júlí.
Reynslan sýnir að flestir viðskiptavinir koma í Vínbúðina föstudaginn fyrir verslunarmannahelgi sem er einn annasamasti dagur ársins. Flestir viðskiptavinir koma á milli klukkan 16 og 18 eða allt að 7 þús. viðskiptavinir á klukkustund.
Flest bendir til þess að viðskiptavinafjöldi fyrir verslunarmannahelgi nú verði svipaður og í fyrra og er undirbúningur í fullum gangi til að hægt verði að taka vel á móti viðskiptavinum.
Í Vínbúðunum er opið er samkvæmt venju um verslunarmannahelgina á föstudegi og laugardegi en lokað sunnudag og mánudag.