Vínbúðin á Hellu opnaði á ný í dag, en henni var lokað árið 2010 vegna breytinga á leiguhúsnæði. Vínbúðin er á sama stað og áður í verslunarkjarnanum og er Sigríður Magnea Sigurðardóttir verslunarstjóri.
Í sumar er Vínbúðin opin mánudaga til fimmtudaga frá 11-18, föstudaga frá 11-19 og laugardaga frá 11-16.
Við bjóðum viðskiptavini velkomna í nýja og glæsilega Vínbúð á Hellu.