Í mars árið 2010 lokaði ÁTVR Vínbúðinni á Hellu vegna framkvæmda sem voru í tengslum við leiguhúsnæði Vínbúðarinnar. Nú eru framkvæmdir í húsinu langt komnar og Vínbúðin mun opna að nýju á sama stað og áður. Gert er ráð fyrir að opnað verði fyrri part sumars.
Sigríður Magnea Sigurðardóttir mun sjá um verslunarstjórn.