Vínbúðin Dalvegi hefur nú opnað aftur eftir breytingar, en miklar endurbætur hafa verið gerðar á húsnæðinu. Vínbúðin er nú mun stærri og bjartari og stór kælir hefur verið útbúinn fyrir bjórinn.
Opnunartími búðarinnar hefur breyst lítillega, en nú opnar kl. 10 í stað 9 áður. Vínbúðirnar Dalvegi, Skeifu og Skútuvogi opna því kl. 10 alla virka daga og eru með opið til kl. 20 á kvöldin, en á laugardögum verður opið frá 11 til 18 eins og áður. Opnunartími annarra Vínbúða er óbreyttur, en á höfuðborgarsvæðinu opna aðrar búðir kl. 11.
Hér má sjá opnunartíma Vínbúða.
Við bjóðum viðskiptavini velkomna í nýja og glæsilega Vínbúð á sama góða staðnum á Dalvegi.