Jólabjórinn hefur sölu í Vínbúðunum þriðjudaginn 15.nóvember. Um 15-20 tegundir verða til sölu þetta árið, sem er svipað og í fyrra.
Sala á jólabjór nam 330 þús lítrum árið 2010 (fyrir tímabilið 15.nóv - 31.des), en heildarsala bjórs var um 2,1M lítra á sama tímabili. Jólabjórinn var því um 16% af heildarsölunni í fyrra.