Sala áfengis í vikunni fyrir verslunarmannahelgi var tæplega 11% minni í lítrum talið en í sömu viku fyrir ári. Samtals seldust 662 þúsund lítrar af áfengi í ár en í sömu viku í fyrra seldust 744 þúsund lítrar. 6% færri viðskiptavinir komu í Vínbúðirnar þessa viku en sömu viku í fyrra, tæplega 117 þúsund á móti 124 þúsund árið 2010. Færri viðskiptavinir komu í Vínbúðirnar mánudag til föstudags. Einungis á laugardeginum komu fleiri viðskiptavini í ár en í fyrra.
Föstudagurinn fyrir verslunarmannahelgi er venjulega einn annasamasti dagur ársins í Vínbúðunum og síðastliðinn föstudagur var þar engin undantekning. 39.700 viðskiptavinir komu í Vínbúðirnar þann dag á meðan 43.700 heimsóttu Vínbúðirnar sama dag fyrir ári, eða rúmlega 9% færri viðskiptavinir.
Í Vínbúðinni í Vestmannaeyjum komu um 2.570 viðskiptavinir föstudag og laugardag um verslunarmannahelgi í fyrra, en í ár heimsóttu um 2.127 viðskiptavinir Vínbúðina, eða 17,2% færri viðskiptavinir. Á Akureyri komu um 4.848 viðskiptavinir sömu daga fyrir ári en 4.759 í ár eða 1,8% færri viðskiptavinir. Hins vegar komu 6% fleiri viðskiptavinir í Kringluna þessa sömu daga miðað við árið í fyrra og 11% fleiri í Smáralind.
