Nú er hægt að nálgast nýjasta Vínblaðið frítt í næstu Vínbúð. Í blaðinu eru góð ráð fyrir fríið, sumarlegar uppskriftir frá veitingastaðnum UNO og uppskriftir af kokteilum sem hægt er að búa til úr hráefni sem til er í flestum ísskápum.
Einnig er í blaðinu rætt um argentínskar matarhefðir, þrúgur frá Argentínu og birt fróðleg grein um mikilvægi forvarna og samspil milli foreldra og unglinga varðandi áfengi.
Vínblaðið er hægt að nálgast frítt í næstu Vínbúð, en einnig er hægt að skoða það hér á vinbudin.is.