Í apríl voru seldir 1.583 þúsund lítrar af áfengi sem er tæplega 22% meiri sala en í apríl í fyrra. Ástæðan er að páskarnir eru annasamur tími í Vínbúðunum en páskarnir voru í mars í fyrra en apríl núna. Sala áfengis tímabilið janúar – apríl er um 2% minni en sömu mánuði í fyrra. Samdráttur í ókrydduðu brennivíni og vodka er 11% á meðan aukning er í sölu á rauðvíni, hvítvíni og blönduðum drykkjum.
