Sleppa valmynd og fara beint í meginmál

ÁTVR í hópi níu bestu

05.09.2024

Í nýlega útgefnum Sjálfbærnivísi PwC 2024 var greint frá því að ÁTVR var eitt af þeim níu fyrirtækjum sem tókst að sýna fram á samdrátt í losun gróðurhúsalofttegunda frá eigin starfsemi og virðiskeðju. Árið 2018 fór ÁTVR að birta upplýsingar á vöruspjaldi flestra vara á vinbudin.is um áætlað kolefnisspor umbúða, en umbúðir eiga stærsta hluta kolefnissporsins.  

Hér á vinbudin.is og í hillum Vínbúðanna eru einnig tilgreindar þær vottanir sem hver vara hefur. Vottuðu flokkarnir eru; Sjálfbært, Lífrænt, Sanngjarnt og Bíódínamískt. Markmiðið með vottun vara er að vernda líffræðilega fjölbreytni og heilbrigði jarðvegs, draga úr losun gróðurhúsalofttegunda og tryggja góð vinnuskilyrði. Óháðir eftirlitsaðilar votta að framleiðslan sé í samræmi við kröfur og er vottunin góð vörn gegn grænþvotti.

Til að draga úr losun í virðiskeðjunni, vinnur ÁTVR nú að með áfengiseinkasölum á Norðurlöndum að verkefni þar sem markmiðið er að reikna heildarkolefnisspor hverrar vöru.  Í framtíðinni er  því stefnt að því að birta við losunartölur til viðbótar við umbúðir, tölur fyrir flutning, framleiðslu og ræktun 

ÁTVR er stolt af því að hafa árangri í samdrætti á losun gróðurhúsalofttegunda og vera í hópi þeirra sem hafa náð bestum árangri. Með nýju verkefni um kolefnisspor vara leggjum við grunn að áframhaldandi árangri í sjálfbærni.