Sala áfengis var 5,6% minni í janúar í ár en í fyrra. Sölubreytingin er mjög mismunandi eftir flokkum. Athygli vekur að hvítvín seldist mun betur nú en í fyrra.
Sala á sterkum drykkjum heldur áfram að dragast saman, bæði í ókrydduðu brennivíni og vodka og blönduðum drykkjum.