Vínbúðinni Garðabæ hefur nú verið lokað. Ákvörðunin var tekin m.a. í ljósi þess að leigusamningur um húsnæðið rann út um áramót en Vínbúðin í Garðabæ hefur verið á þessum stað frá því í maí 2001.
Staðsetning og stærð húsnæðisins sem Vínbúðin í Garðabæ var í hentar illa fyrir verslun af þessu tagi og á síðustu misserum hefur mikið af verslun flust af svæðinu. Þá hefur sala í Vínbúðinni í Garðabæ á undanförnum árum dregist hægt og rólega aftur úr almennri þróun sölu, bæði á landsvísu og á höfuðborgarsvæðinu. Sem dæmi má nefna að magnsala Vínbúðarinnar í Garðabæ er um 40 – 50% minni en meðalsala Vínbúða með svipað umfang og opnunartíma.
Í framhaldi af lokun Vínbúðarinnar í Garðabæ verður hugað að framtíðarskipulagi Vínbúða á þessu svæði með það að markmiði að staðsetning og aðkoma verði sem best fyrir viðskiptavini.
Við þökkum viðskiptavinum Vínbúðarinnar fyrir viðskiptin á undanförnum árum og bendum á nærliggjandi Vínbúðir
á Dalvegi, í Smáralind og í Hafnarfirði.