Sala áfengis sumarmánuðina júní, júlí og ágúst er örlítið minni en sömu mánuði í fyrra. Sala á rauðvíni, hvítvíni og freyðivíni er meir en sömu mánuði 2009 en sala á bjór og sterkum vínum er minni. Athygli vekur að sala á freyðivíni eykst talsvert á milli ára en sala sumarsins nær hins vegar ekki sölu sömu mánaða 2007 en þá seldust um 30 þús. lítrar af freyðivíni.
Fyrstu átta mánuði ársins er samdráttur í seldum lítrum 6% á milli ára. Minni samdráttur er í sölu á hvítvíni en rauðvíni en hlutfallslega hefur dregið meira úr sölu bjórs eða 6% á milli ára. Sala á ókrydduðu brennivíni og vodka og blöndum drykkjum dregis mikið saman á milli ár.
