Fyrstu sex mánuði ársins hefur sala á áfengi dregist saman um 7,3% í lítrum miðað við sama tíma árið 2009. Hlutfallslega er samdrátturinn meiri í bjór en léttvínum. Sala á lagerbjór hefur dregist saman um tæplega 7% á árinu en rauðvín um tæp 6% á meðan sala á hvítvíni hefur dregist saman um 3% á milli ára.
Sala áfengis í júní er hins vegar 5,4% meiri í lítrum en í júní 2009. Hlutfallslega er mesta aukningin í sölu á hvítvíni eða 18% því næst í rauðvíni 11% en sala á bjór er um 4% meiri en í júní í fyrra.