Hópur frá Vinmonopolet, norsku áfengiseinkasölunni, hefur dvalið hér undanfarna daga til að fræðast um fyrirkomulag samstarfsverslana hjá ÁTVR. Hjá Vinmonopolet er í skoðun að opna smærri verslanir á landsbyggðinni. Heimsókn þeirra er liður í þeirri skoðun þar sem horft er til þess hvernig vínbúðir eru reknar í samstarfi við þriðja aðila hér á landi. Hópurinn heimsótti Vínbúðirnar á Hólmavík, Búðardal, Stykkishólmi, Ólafsvík, Grundarfirði, Akranesi og Borgarnesi auk vínbúða á höfuðborgarsvæðinu og á Suðurnesjum.