Ársskýrsla ÁTVR 2009 er komin út. Í skýrslunni má finna ítarlegar upplýsingar um starfsemi, rekstur og sundurliðanir um sölu áfengis og tóbaks. Sala áfengis á árinu 2009 var tæplega 20 milljón lítrar eða um 2% minni sala en árið áður. Alls voru seldir um 15,8 m.ltr af bjór, en hlutur innlendra framleiðenda í sölu bjórs var 72% og hefur aldrei verið hærri. Samdráttur var í sölu vindlinga á árinu um 6,3% en aukning í sölu reyktóbaks, nef- og munntóbaks.
Rekstrartekjur voru 25.244 m. kr. án vsk. Tekjur af sölu áfengis voru 16.974 m.kr. og jukust um 18,7% á milli ára. Tekjur af sölu tóbaks jukust um 19,5% á milli áranna 2008 og 2009 og voru 8.229 m.kr. Rekstrargjöld náum 23.978 millj. Á árinu 2009 var farið í fjölmargar aðgerðir til að hagræða í rekstri sem skiluðu góðum árangri. Hagnaður ársins var 1.375 milljónir kr. í samanburði við 447 milljónir árið áður. Árið 2009 er besta rekstrarár ÁTVR frá því skattar voru aðskildir frá rekstrartekjum fyrirtækisins. ÁTVR skilaði 960 milljónum króna í ríkissjóð í stað 210 m. sem fjárlög gerðu ráð fyrir.
Viðskiptavinir Vínbúðanna hafa aldrei verið ánægðari en samkvæmt niðurstöðum Íslensku ánægjuvogarinnar var Vínbúðin í öðru sæti í flokki smásölufyrirtækja. Vínbúðin var jafnframt hástökkvari í könnuninni en ekkert fyrirtæki hækkaði sig eins mikið á milli ára.
Ársskýrsluna má sjá í heild hér.