Það sem af er árinu hefur sala á áfengi dregist saman í lítrum talið um 7,8% miðað við sama tímabil árið 2009. Ekki er raunhæft að bera saman sölu í apríl á milli ára þar sem páskarnir hafa mikil áhrif en í ár voru páskarnir í mars en voru í apríl í fyrra.
Sala hefur minnkað í nær öllum flokkum áfengis en mismikið. Það sem af er árinu er samdrátturinn hins vegar mest áberandi í sterkum og blönduðum drykkjum.
