Í mars seldust 1.614 þús. lítrar af áfengi sem er tæplega 20% meiri sala en árið 2009. Þessa miklu aukningu má rekja til þess að páskarnir eru í mars í ár en voru í apríl í fyrra. Ef sala páskavikunnar er borin saman við sölu í páskavikunni 2009 þá voru seldir 505 þús. lítrar af áfengi í páskavikunni í ár sem er 3,5% minna en sambærilega viku í fyrra.

Sala áfengis janúar – mars jókst um 1,1% m.v. sama tímabil fyrir ári. Sama gildir hér að páskarnir eru annasamur tími og er því ekki rétt að draga ályktanir um söluþróun fyrr en í lok apríl þegar sölutímabilið verður sambærilegt.
